Aðsent efni

Síðuhöfundi hefur borist eftirfarandi smásaga til birtingar á síðunni. Höfundur smásögunnar er Friðbert Elí Friðbertsson. 

Örlög draumanna

Hurðin lokaðist! Hún kom inn að loknum erfiðum vinnudegi og lagðist örmagna af þreytu í kalt rúmið. Hún átti erfitt með svefn þessa nótt því hún hafði eitthvað á tilfinningunni, eitthvað óljóst og vissi hún hvorki hvort það væri gott né slæmt. Hún sofnaði loks og svaf í örstutta stund. Hana dreymdi bleikan fíl koma til hennar í húsi þar sem mikil gleði var ríkjandi og ekki ólíkt skemmtistað. Fíllinn bauð henni upp í dans og hún vaknaði mjög ánægð og vissi hún ekki af hverju hún væri svona ánægð en mundi samt drauminn. Allan daginn var hún mjög utan við sig því hún var að reyna að botna drauminn og rakst hún á á mann á horni Lækjargötu og Laugarvegs. Maðurinn bað hana afsökunar en hún sagði þetta vera sér að kenna því hún hafði verið að horfa niður fyrir sig. Þau horfðust þá í augu og hún fekk á tilfinninguna aftur eitthvað sem átti eftir að koma fyrir og spurðist ekki af konunni fyrr en 7 árum síðar. Þá dreymdi hana alveg sama draum aftur um bleika fílinn og dansinn þar sem mikil gleði var. Daginn eftir var hún meira utan við sig heldur en nokkurn tíma áður því hana langaði að botna drauminn. Hún fór á bókasafn og las draumabækur um hvað draumurinn gæti táknað en hann var enn jafn óljós. Um kvöldið kom vinkona hennar til hennar og hað hana að koma með sér á skemmtistað. Hún jánkaði því og gekk út með vinkonu sinni því hanni fannst gott að fá sér snúning til að dreifa huganum. Er hún kom á staðinn sem var á horni Austurstrætis og Lækjargötu bauð maður í bleikum jakkafötum henni upp í dans. Hún dansaði við manninn allt kvöldið og er þau komu út eftir að staðurinn lokaði horfði hún á staðinn þar sem hún hafði rekist á mann sjö árum áður, mundi eftir draumnum um fílinn og leit í augu mannsins í bleiku jakkafötunum og sá sömu augu og sjö árum áður á horni Laugavegs og Lækjargötu og botnaði þá drauminn. Hún sagði við manninn: „Þú ert fíll drauma minna“ og brosti...


Hr. Verkfræðingur tjáir sig um atburði sumarsins (í tveim hlutum)

Það er eitthvað vesen með blog.is og netið hérna heima. Get ekki vistað færslu á síðuna þegar ég er á netinu í gegnum þráðlausa routerinn okkar. Búinn að kvarta til stjórnanda síðunnar sem sagði að þetta væri greinilega eitthvað vandamál hjá mér, þar sem hann gat vandræðalaust vistað færslu. Datt síðan í hug um daginn að stelast á netið hjá gömlu konunni sem býr við hliðina á okkur, henni Lise, og viti menn – ég gat vistað færslu. Ég hef enga skýringu en léttasta lausnin fyrir mig er að nota netið hennar Lise til að vista færslur. Vona bara ekki að hún taki upp á því að læsa netinu sínu.

 

14. júlí

Þá er þessum áfanga lokið – kominn með prófskírteini sem staðfestir að ég er Master of Science in Engineering, Industrial Management. Á dönsku heitir þetta Civilingeniør i Virksomhedssystemer.

Það er margt búið að gerast síðan ég skrifaði síðast, enda liðnir meira en tveir mánuðir. Lokaverkefninu var skilað á réttum tíma – að sjálfsögðu – en lokatörnin reyndist lengri en spár gerðu ráð fyrir. Enduðum með að vera í skólanum frá 8 á mánudagsmorgni til 10 á þriðjudagsmorgni. Um kl. 2 aðfaranótt þriðjudagsins 3. júní (skiladagsins) ákváðum við að það tæki því ekki að fara heim að sofa, til þess eins að þurfa mæta kl. 9 og skila.

Eftir að verkefninu var skilað tók við rólegri tími, þar sem við unnum 8-16 flesta daga. Ekkert stress. Verkefnaskilum var fagnað af öllum árgangnum með því að fara í Gokart, þar sem ég sigraði í æsispennandi tímatöku, þó ég hafi leitt keppnina nánast allan tímann.

Sjálf vörnin var síðan 23. júní á afmælisdag ömmu Elsu, en afi og amma voru einmitt hjá okkur helgina fyrir vörnina. Mjög gaman að fá þau í heimsókn og ég tala nú ekki um að geta boðið þeim gistingu. Vörnin gekk mjög vel og bæði vejleder og censor (prófdómari) voru mjög ánægðir með frammistöðu okkar. Niðurstaðan var að við fengum báðir 10 í einkunn, sem er næst hæsta einkuninn í danska 7-stigs einkunnaskalanum. Þeir sögðu okkur að þetta væri stór tía (sem sagt nálægt því að vera tólf) en við hefðum frekar viljað fá litla tólfu. Ég og Kåre höfðum okkur til gamans spáð hvað við fengjum í einkunn og sú spá hljóðaði upp á að það væru 60% líkur á 10, 20% líkur á 12 og 20% líkur á 7. Við reyndumst sem sagt sannspáir.

Eftir útskriftina héldum við familían sem leið lá til Hanstholm, þar sem pabbi, mamma, systkini mín, afi Alli, amma Elsa og amma Nóra voru samankomin. Tilefnið var þrefalt – útskrift Alberts úr grunnskólanum, útskrift Elsu úr menntaskóla og útskrift mín úr háskóla. Ég reyndist vera svarti sauðurinn í fjölskyldunni þar sem ég var eini sem ekki fékk 12 í einkunn í seinasta prófinu mínu. Bæði Albert og Elsa fengu 12 í prófinu og ég eyðilagði því meðaltal fjölskyldunnar. Pabbi og mamma buðu í mat á Østerild krå þar sem við snæddum dýrindis kvöldverð og Emilía skemmti sér einhver ósköp við að hlaupa um og láta hina og þessa frænda/frænku/afa/ömmu hlaupa á eftir sér.

Föstudaginn 27. júní var síðan sjálf útskriftin, sem var mjög látlaus og fljótt afstaðin. Seinni partinn blésum við Erla til veislu þar sem við lögðum á borð fyrir 15 manns í stofunni, með hjálp foreldra Erlu. Veislan heppnaðist mjög vel og allir voru mettir og sælir. Í aðalrétt var grillað nautakjöt og kartöflugratín, með piparostasósu að hætti tengdó. Í eftirrétt var kransakaka í boði mömmu og nammidesert að hætti Erlu.

Ég fékk heilan helling af gjöfum þar sem hæst ber fjallahjól frá p&m og systkinum og GPS-tæki frá tengdó. Síðan voru Erla og Emilía svo yndælar að gefa mér gjafakort uppá gistingu á hóteli í Ringkøbing, sem er við vesturströnd Jótlands. Gjafakortið er fyrir tvo og það stendur ekkert um að ég verði að taka Erlu með, þannig að ég er ennþá að íhuga hverjum ég á að bjóða í rómantíska helgargistingu.

Jæja ég ætla láta þetta nægja í bili og skrifa meira seinna.

 

19. ágúst

Nú er semsagt liðinn rúmlega mánuður frá færslunni hér að ofan. Á þessum tíma hefur margt gerst en þó ber hæst heimsókn þriggja kynslóða af Friðbertum ásamt fylgiliði. Hér á ég við verðandi viðskiptafélaga minn, Friðbert Elí Friðbertsson, sem kom í heimsókn ásamt konu, börnum og foreldrum sínum. Það vill einmitt svo skemmtilega til að sonur hans Elí heitir Friðbert, sem og faðir hans, eins og glöggir lesendur hafa núþegar áttað sig á samanber eftirnafn Elís.

Elí og fjölskylda hittu á besta tímann veðurfarslega séð í allt sumar. Það var um 25° C hiti daginn sem þau komu til Danmerkur, sennilega lægsti hitinn í allri ferðinni. Hitinn fór nefnilega alveg upp í 30° C og kannski eitthvað ofar. Það var líka heiðskýrt allan tímann og sem sagt hið besta sumar- og strandveður.

Á meðan þau voru í heimsókn var grillað alloft, fjölmargir bjórar drukknir ásamt nokkrum rauðvínsflöskum, við Elí spiluðum badminton, skelltum okkur í dýragarðinn (ekki bara við Elí, heldur allir), fórum í Gaden (bara við Elí), það var verslað, fórum í Jumboland, fórum út að borða – svo dæmi séu tekin af því sem fram fór þessa 10 daga. Þetta var hin mesta skemmtun og tvímælalaust einn af hápunktum sumarsins hjá fjölskyldunni á Oddesundvej 69.

Starfsleit

Segja má að eitt meginþema sumarsins hjá mér hafi verið starfsleit, sem er auðvitað eðlilegt framhald að háskólanámi loknu. Ég ákvað snemma í vetur að byrja ekki að leita mér að vinnu fyrr en eftir að ég væri búinn að skila lokaverkefninu af mér, þar sem ég taldi mjög góðar líkur á því að fá vinnu. Auðvitað var ég byrjaður að svipast um eftir störfum en ekki byrjaður að leita mér að vinnu af fullum krafti. Ég fékk starfstilboð frá Grundfos, þar sem ég var í praktík á 9. önn og vann lokaverkefnið einnig fyrir, í vor en neitaði því þar sem Grundfos er of langt frá Álaborg og við ekki tilbúin að flytja fyrir það starf. Eftir útskrifina í lok júní byrjaði ég síðan að leita mér að vinnu og fann fljótlega þrjú störf sem ég ákvað að sækja um. Öll fyrirtækin voru á Norður-Jótlandi og í max svona hálftíma keyrslufjarlægð. Fékk boð um að koma í viðtal hjá öllum þremur fyrirtækjunum seinni hluta ágúst, þar sem margir voru í fríi í júlí og byrjun ágúst. Byrjaði á að fara í viðtal hjá Mercuri Urval, sem er ráðningarþjónusta sem sá um að ráða í starf sem ég sótti um hjá Svanehøj. Fór fyrst í eins konar kynningarviðtal, til að heyra meira um starfið og segja meira frá mér. Var síðan beðinn um að koma í framhaldsviðtal með mögulegum verðandi yfirmanni frá Svanehøj. Var síðan strax beðinn um að koma í persónuleikapróf og greindarvísitölupróf, sem er víst eitthvað sem Mercuri Urval senda alla sem þeir ráða í gegnum. Daginn eftir var ég boðaður í viðtal hjá Svanehøj með bæði verðandi yfirmanni og forstjóra fyrirtækisins. Þetta gekk allt saman svo vel að í gær var mér boðið að skrifa undir ráðningarsamning, sem ég gerði og afboðaði í framhaldinu viðtölin hjá hinum tveim fyrirtækjunum.  

Að lokum

Þá er von á 33% aukningu í fjölskyldunni hjá okkur. Emilía verður stóra systir einhvern tímann í kringum mánaðarmótin jan/feb 2009. Við hlökkum að sjálfsögðu svakalega mikið til. Þetta verður þriðja barnabarnið í föðurfjölskyldunni minni þar sem Iðunn og Sverrir eiga von á litlu kríli eftir nokkrar vikur en fjórða í móðurfjölskyldunni minni.

Skal reyna láta ekki líða svona langt á milli næstu færslna, en það fer auðvitað eftir því hvort hún Lise læsir nokkuð netinu hjá sér.


Lokatörnin

Jæja þá er lokatörnin í náminu hafin. Það er minna en mánuður í verkefnaskil og við Kåre búnir að setja í 5. gírinn. Unnum næstum alla helgina og svoleiðis verða helgarnar fram að 3. júní. Ekki mikils að vænta á þessari síðu þess vegna, þótt það sé reyndar ekki nein breyting... Hvet ykkur lesendur góðir til að sjá hvernig viðrar í Álaborg akkúrat þessa stundina - getið séð það hérna. Ef það er gott veður getið þið samglaðst mér og ef til vill sent mér hlýja strauma.

Svo öllu sé haldið til haga þá kom ég heim á klakann í tilefni Norðurlandamóts, eins og tilkynnt hafði verið. Keppti heilmarga bardaga en vann því miður ekki nógu marga. Náði þó bronsi í þyngdarflokknum og við lentum í 4. sæti í liðakeppni (fyrir ofan Dani).  Laugardagskvöldið hitti ég síðan Elí, Bjarka, Klöru og Hákon og skemmtum við okkur stórvel. Gaman að sjá að fólk tekur kvöldið frá þegar maður mætir á svæðið.

Emilía er búin að þroskast og stækka mikið síðustu vikur og mánuði. Er núna farin að labba og nánast hlaupa um allt. Byrjaði á þessum ósköpum fyrir nákvæmlega mánuði síðan. Í gær upplifðum við okkar fyrstu búðarferð þar sem ekki var hægt að hafa hemil á Emilíu.. svoleiðis verða sennilega allar búðaferðir næstu 2-3 árin Tounge

Hún var í pössun hjá ömmu (mömmu) í Hanstholm um helgina, þar sem það var lokað hjá dagmömmunni á föstudaginn og við Erla þurftum að fara vinna (skrifa verkefni = vinna). Hundarnir á heimilinu vöktu mikla lukku þar sem Emilía elskar dýr og eiginlega bara allt sem hreyfist. (Reynir alltaf að grípa bununa þegar ég helli úr íláti í baðið hennar... tengist ekkert hundunum en datt það bara í hug þar sem vatnið hreyfist.. og er þar af leiðandi spennandi í augum Emilíu.)

En jæja, ég ætla fara koma mér í rúmið.... kemur sennilega ekki nýtt á þessa síðu fyrr en eftir 3. júní..


Þögnin rofin

Jæja gott fólk, þá er víst kominn tími til að rjúfa hina löngu þögn sem ríkt hefur í kringum þessa síðu. Ef ég dreg það mikið lengur að blogga endar með því að ég verð að gefa út heila bók til að koma öllu frá mér, sem mér liggur á hjarta.

Grundfos ferðin var mjög fín en tók líka ágætlega á. Töfðumst í Kaupmannahöfn vegna snjóbyls (varð nú reyndar ekki alveg var við bylinn, en jú það var smá snjór í Köben). Komumst ekki til Frakklands fyrr en á þriðjudagsmorgni í stað mánudagskvölds, sem þýddi að við höfðum ca. 2,5 tíma til að ræða það sem við höfðum ætlað að eyða 6 tímum í. Það gekk samt ágætlega, komumst yfir mest allt sem við vildum. Svo héldum við í taxa frá France í gegnum Þýskaland til Luxembourg og flugum til Amsterdam og þaðan áfram til Newcastle. Eyddum miðvikudeginum síðan í Grundfos í Sunderland og héldum heim á leið seinni part dags, í gegnum Amsterdam og lentum svo í Billund og vorum keyrðir heim í taxa þaðan 200 km til Álaborgar. Sá taxi kostaði með afslætti 2500 DKK. Grundfos borgar :)

Um páskana birtust svo tengdó óvænt stuttu eftir að Erla var búin að sækja Andra og Dagnýju út á flugvöll. Þau höfðu sem sagt komið með sama flugi og náð að lauma sér í taxa niður á hótel án þess að Erla sæi. Mjög gaman að fá þau öll í heimsókn en mér brá samt heldur betur þegar ég sá Helga, pabba hennar Erlu koma inn um dyrnar.. var nokkrar sekúndur að kveikja hvað væri að gerast.

Helgina 28.-30. mars fórum við Andri ásamt fleirum úr Sportskarate.dk og Ísaki og Jonna frá Íslandi til Dublin til að keppa á Irish International Open. Mótið var minna og veikara en við bjuggumst við en það gerði ekkert til þar sem tilgangurinn var fyrst og fremst að fá æfingu. Ég keppti ágætlega á laugardeginum og náði bronsi í +70kg flokki og silfri í opnum flokki. Á sunnudeginum vorum við ekki nógu góðir, kepptum í liðakeppni við reyndar ágætlega sterkt lið frá Englandi - og við töpuðum og fengum þar með silfur.

Í skólanum er allt á fullu og minna en 2 mán. í að við eigum að skila verkefninu. Maður er aðeins farinn að finna pressuna aukast þar sem okkur finnst ansi mikið eftir ennþá. En þetta mun nú allt ganga að lokum held ég og ég er bjartsýnn á útkomuna. 27. júní verður síðan útskrift og þá getur maður vonandi kallað sig verkfræðing. 

En þá að máli málanna. Á laugardaginn fer fram Norðurlandamót í karate í Laugardalshöllinni. Við Andri komum að sjálfsögðu heim á klakann til að leggja okkar af mörkum til að Ísland verði meðal þjóðanna á verðlaunapöllunum. Þetta verður að öllum líkindum sterkt en lítið mót, þar sem hver þjóð má ekki senda fleiri en 2 keppendur í hvern flokk. En það eru mjög góðir keppendur á flestum Norðurlöndunum þannig að það eru allar líkur á því að fá að sjá góða og spennandi bardaga. Hvet alla sem vettlingi geta valdið til að koma og hvetja okkur í íslenska liðinu til dáða! 


Minnislisti

Skrifa um:

Grundfos ferðalag - 6 lönd á 14 tímum.

Páskana og óvænta heimsókn tengdó

Irish Open i Dublin - 2 silfur og brons

3 mánuðir í útskrift

NM 12. apríl í Laugardalshöll kl. 10

 


DM og Grundfos ferðalag

Keppti á DM í karate um síðustu helgi og fékk bronsverðlaun í -75 kg flokki. Stefnan var sett á gull en í vegi mínum stóð landsliðsmaður Dana í mínum flokki. Svekkjandi að ég tapaði fyrir honum, sérstaklega þar sem ég veit alveg hvað ég gerði vitlaust og hvað ég hefði átt að gera. En hann er mjög góður þannig að það er engin skömm að tapa fyrir honum.

Þetta var fyrsta mót tímabilsins og ég er alveg ágætlega sáttur við frammistöðuna og hvernig mér gekk að vinna með það sem ég hef æft mikið. Höfum æft mikið taktík og það að hugsa um taktíkina á meðan bardaganum stendur. Finnst ég aldrei hafa haft jafn mikil tök á að hugsa um taktíkina meðan bardaganum stendur og allt sem ég gerði (þótt það heppnaðist ekki allt) passaði við taktíkina sem ég lagði upp með.

Næsta mót er Irish Open í Dublin helgina 29.-30. mars. Fer þangað með Andra, Frank, Peter, Payam og Hussein héðan úr Sportskarate.dk og frá Haukum kemur Guðbjartur Ísak.

---------------

Á morgun förum við Kåre í ferð á vegum Grundfos í tengslum við lokaverkefnið sem við erum að vinna. Tilgangur ferðarinnar er að heimsækja verksmiðjur Grundfos í Frakklandi og Englandi og safna gögnum sem geta nýst okkur í verkefninu. Við leggjum af stað frá Álaborg seinni partinn á morgun, fljúgum til Kaupmannahafnar og áfram til Luxembourg. Þaðan keyrum við í leigubíl til Frakklands á hótelið sem við gistum á, sem er í grennd við borgina Metz að ég held. Heimsækjum verksmiðju Grundfos í Frakklandi á þriðjudeginum og seinni partinn keyrum við í leigubíl til Luxembourg og fljúgum til Amsterdam. Frá Amsterdam höldum við áfram til Newcastle og tökum leigubíl þaðan til Sunderland. Gistum á hóteli aðfaranótt miðvikudags og heimsækjum Grundfos á miðvikudeginum. Seinni part miðvikudags fljúgum við aftur til Amsterdam og þaðan áfram til Billund. Frá Billund verðum við keyrðir til Álaborgar í leigubíl (ca. 200 km). 

Þetta verður sem sagt heljarinnar ferðalag, sex flug á rúmlega 50 klukkustundum. 

-------------

Á fimmtudaginn koma Dagný og Andri systkini Erlu í heimsókn og verða hjá okkur yfir páskana. Það verður örugglega svaka fjör og Emilía ætti að geta sýnt allar sínar kúnstir.  


Fyrsta mót vorsins

Jæja þá er komið að fyrsta móti tímabilsins. Danska meistaramótið í karate verður haldið í Solrød, úthverfi kaupmannahafnar á laugardaginn 8. mars. Förum til Kaupmannahafnar á morgun. 

Ég keppi í -75kg flokki og opnum flokki. Eftir æfingu áðan var ég 73,2 kg. Vel af sér vikið miðað við að ég fór alveg upp í 77,5 fyrir 3-4 vikum síðan. 

Emilía fer í pössun til ömmu sinnar í Hanstholm um helgina því Erla er að vinna og ég verð að keppa. Verður í burtu frá föstudegi fram á sunnudag. Fyrsta skipti sem hún gistir tvær nætur annars staðar en heima. Á örugglega eftir að skemmta sér mjög vel.

--------------------

Ég er nánast kominn með nýja tölvu eftir að ég sendi hana í viðgerð tveim vikum áður en ábyrgðin rann út. Fékk nýtt batterí og hleðslutæki og svo var eitthvað fleira lagað. Frábært að vera kominn með nýtt batterí þar sem það gamla dugði ekki meira en 10 mín Smile


Lokaverkefni...

Jæja þá er lokaverkefnið komið á fullt. Sitjum sveittir alla daga í skólanum, ég og Kåre, sem er hinn hlutinn af grúppu 2.012b.

Erum að fara á fund í Grundfos á þriðjudaginn, með stýrihóp um notkunarmöguleika á APO kerfi, sem kemur við sögu í verkefninu okkar. Ætla ekki að útskýra það nánar. 

Fórum með Emilíu til tannlæknis áðan, eða í tannverndarráðgjöf - ætli það sé ekki meira passandi lýsing. Hún er komin með 11 tennur (við vissum það alveg fyrir, en gott að fá það staðfest :) og er sem sagt ansi fljót að fá tennur miðað við meðaltalið. Eða meðal danskt barn. Komumst að því að jógúrt sem við stundum höfum gefið henni - ekki oft samt - inniheldur 3 sykurmola, ein pínku dolla. Ekki meira svona jógurt.

Er í hálfgerðri megrun þessa dagana, er ennþá að reyna ná jólamatnum af mér og þarf að vera fitt fyrir Danska meistaramótið sem er 8. mars. Var 76,6 kg í síðustu viku eftir æfingu, 75,6 á sama tíma í þessari viku. Allan mældi fituprósentuna hjá mér og ég var með 16,1 í fituprósentu. Yfir 15% er ansi mikið fyrir íþróttamann og þess vegna er átak í gangi núna. Stefni að því að komast niður í 13% fyrir vorið. 

Jæja nenni ekki að skrifa meira núna...... later! 


Niðurstaða stýrihóps BAS um fjölda athugasemda

Skv. embættisbréfi 2008/3 var skipaður stýrihópur Bloggsíðu Ara Sverrissonar til athugunar á stöðu athugasemda á síðunni. Stýrihópurinn hefur nú lokið störfum og er sammála um þessa niðurstöðu:

Andri Sveinsson: 10 athugasemdir

Friðbert Elí Friðbertsson: 9 athugasemdir

Bjarki Heiðar Sveinsson: 9 athugasemdir

Iðunn Elsa Kristinsdóttir: 4 athugasemdir

Klara Sveinsdóttir: 1 athugasemd

Athugasemdir við athugun þessa á athugasemdum skulu berast stýrihópnum í síðasta lagi í gær.  


Til hamingju með afmælið elsku litla Emilía

Nú er liðið heilt ár síðan þú komst í heiminn og breyttir lífi okkar mömmu þinnar gífurlega mikið. Við vorum búin að bíða spennt eftir þér frá því vorið 2006 og það var allt klárt heima á Hvalpsundvej, þegar við fórum inn á fæðingadeild sunnudagskvöldið 4. febrúar.

Mamma þín var búin að kveljast allan sunnudaginn og við vorum búin að fara inn á fæðingardeild fyrr um daginn í tékk, en vorum send heim aftur. Á leiðinni heim missti mamma þín svo vatnið, á meðan ég var að kaupa kvöldmatinn á Burger King við Nytorv.

Eina sem ég gat gert nóttina áður en þú fæddist var að vera alltaf með kaldan þvottapoka til að strjúka ennið á mömmu þinni, því hún hafði það ekki mjög gott. Þetta gekk líka frekar hægt þar sem þú snerir hausnum ekki alveg rétt og varst ekkert á leiðinni lengra, eins og þú varst búin að koma þér fyrir. En að lokum snerirðu hausnum og þá fór þetta að ganga og kl. 6:53 komstu í heiminn. Það var sennilega stærsta augnablik ævi minnar og því gleymi ég aldrei. Allt í einu lástu ofan á maganum á mömmu þinni, í staðinn fyrir að vera inní maganum. Við biðum spennt eftir að þú gæfir frá þér hljóð og það gerðirðu líka að lokum. Yndisleg hljóð sem komu frá þér og ég á þau sem betur fer á vídeó, svo ég get alltaf rifjað þau upp.

Þegar þú varst nýfædd langaði mig helst að hringja í mbl.is, CNN, Sky og alla helstu fjölmiðla og segja þeim að þú værir komin í heiminn. Mér fannst sjálfsagt mál að það væri forsíðufrétt hjá þessum miðlum. Svo merkileg var fæðing þín. En það er víst bara þannig sem öllum foreldrum finnst um fæðingu barna sinna.

Á þessu fyrsta ári af lífi þínu hefurðu upplifað ansi margt. Þú ert búin að flytja einu sinni, hefur farið 12 sinnum í flugvél, þú ert farin að borða mestallan mat, segir dada, dadi, babi, mamma, voff voff og fleiri orð, hefur farið á 5 karateæfingar, kominn með sér herbergi og ert byrjuð hjá dagmömmu. Þetta er auðvitað bara brot af öllu því sem þú hefur upplifað.

Á þessu fyrsta ári hefurðu líka breytt ansi mörgu í lífi okkar mömmu þinnar, við t.d. sofum sjaldan lengur en til 8 um helgar (sem er þó kannski ágætlega sloppið), erum búin að kaupa bíl fyrir þig og við eyðum hellings pening í bleyjur og alls konar barnadót sem fylgir því að hugsa um þig. 

En við sjáum auðvitað ekki hið minnsta eftir því sem við höfum fórnað, þar sem þú hefur gefið okkur svo miklu miklu meira. 

Til hamingju með afmælið litla sæta elsku krúsídúlla. 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband